Úthlutun Fiskeldissjóðs
02.05.2024Á dögunum úthlutaði stjórn fiskeldisjóðs, 437,2 milljónum kr til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum. Af því var úthlutað til Fjarðabyggðar 151.840.000 kr. til fjögurra verkefna. Alls bárust 29 umsóknir frá átta sveitarfélögum, samtals að fjárhæð rúmlega 1,5 milljarður króna, sem er meira en þrefalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.
Umsóknarfrestur var til 6. mars og lauk úthlutun 8. apríl.